Börnin grétu gleðitárum
því hún var komin aftur.
Sú sem allir elskuðu
endurheimt úr helju.
Fræknar voru sögurnar
frá öllum heimsins löndum.
Ljóslifandi myndirnar
spruttu úr hennar orðum.
En bara ef hún
hefði séð inn í huga þeirra.
Fundið sorgina
sem deyft hafði allt.
Bara ef hún fyndi vonleysið
sem fyllti þau
hefði hún strax í stað
hætt að skína.
Síðla kvölds er sögum lauk
börnin tóku að þagna.
Innst í hjörtum vissu þau
á morgun yrði hún farin.
Tenha acesso a benefícios exclusivos no App e no Site
Chega de anúncios
Badges exclusivas
Mais recursos no app do Afinador
Atendimento Prioritário
Aumente seu limite de lista
Ajude a produzir mais conteúdo